Dúddi bóndi
Ýmislegt til sölu :)
Klukkan
Dagsetning
8. febrúar 2012
26.10.2007 00:22:53 / Dúddi

Fréttir og Kastljós

Hræðilegur klaufaskapur var að hleypa negrastráka málinu í fréttirnar.

Þegar börnin mín spyrja núna afhverju þessi bók er bönnuð í leikskólum og maður segir þeim að það sé vegna þess að persónurnar eru svartar þá kemur "já en pabbi, þú hefur alltaf sagt að það skipti ekki máli hvort fólk er svart eða hvítt". Eina svarið við því er að sumt fólk hefur ekki þann þroska enn í dag að horfa fram hjá því hvernig fólk er á litin. Sorglegt að það skuli vera fólkið sem heldur að það sé að berjast fyrir þá lituðu :(.
Nú á að afhenda rasistum bókina "10 litlir negrastrákar" sem gjöf til að hrella börnin okkar, bara af því að nokkrar persónur eru viðkvæmar fyrir henni, geta ekki horft nema á húðlitinn, og eyðileggja vinnu okkar hinna sem höfum verið að reyna að kenna börnum okkar að kynþáttur skipti ekki máli.
Hvað er næst? Banna að sagan um Hans klaufa sé lesin í leikskólum af því að Hans er hvítur á öllum teikningum eða nýju fötin keisarans? Nei sennilega ekki, þeir sem vilja að negrastrákarnir séu bannaðir virðast líta á blökkumenn sem minnimáttar sem allir verða að sameinast um að vernda eins og þarf að gera fyrir þá sem eru ekki eins og allir hinir og hafa ekki þroska til að bjarga sér sjálfir út í hinum stóra heimi. Hvernig væri frekar að líta á blökkumenn sem jafningja okkar?

En að öðru og ekkert sorglegu.
Í Kastljósi í kvöld var meistari Jón Magnússon, þingmaður frjálslynda, var að tjá sig um hvernig kerfið í kringum niðurgreiðslu á landbúnaðarvörum ætti að vera.
Hann sagði að bændur íslands væru svo duglegir að það væri allt í lagi að minnka niðurgreiðslurnar og leggja niður tolla á landbúnaðarvörum :lol:
Hvað meinar hann með því? Eru bændur svo duglegir að þeir þurfa ekki þak yfir höfuðið, þeir geta bara hlaupið sér til hita? Eða eru þeir svo duglegir að þeir mega ekkert vera að því að stofna fjölskyldur og ekki einu sinni að stoppa aðeins til að fá sér að borða? :lol: Nei, sennilega á hann við að bændur í löndunum í kringum okkur séu letingjar og þess vegna gætu þeir aldrei keppt við okkur íslensku í verði.

Sjáum okkur nú til. Ekki er tollur á nærri allri matvöru sem flutt er inn til landsins, samt er jafn mikill munur á verði á þeim mörgum og jafnvel meiri á milli landa heldur en landbúnaðarvörum. Önnur lönd eru mörg hver með tolla á innflutningi sem gerir það að verkum að ef við fellum niður tolla þá geta erlendir bændur flutt vörur til landsins en við ekki út.
Vöruverð verður alltaf það sem flestir eru tilbúnir að borga. Nú er virðisaukalækkunin smátt og smátt að étast upp t.d.

En Jón hefur alltaf verið brandarakarl.

Dúddi með engan húmor :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 23:30:17 / Dúddi

Fréttir

Guðdís:

Hún er nú byrjuð í 3. bekk og líkar gríðarlega vel og gengur eftir því mjög vel líka :)

Begga:

Hún er nú byrjuð í 5. bekk. Er yfir sig ástfangin og gengur mjög vel í náminu :)

Katrín:

Hún er byrjuð í 9. bekk og er í 10. bekk í ensku og er að læra sálfræði við Verslunarskóla Íslands. Virðist ganga vel í því öllu saman.
Hún er að spá í að fara á leiðtoganámskeið hjá Kirkjunni en henni var boðið það ásamt annari stúlku hér í sveit þar sem að þær eru að aðstoða prestinn í sunnudagsskólanum og sjá þar um brúðuleik aðallega.
Hún fór i skólaferðalag í haust til Danmerkur og lét vel af því.

Bragi.

Hann er byrjaður í 10. bekk og er að læra lögfræði við Verslunarskóla Íslands og í fyrsta skipti stefnir hann á eitthvað í lífinu þar sem honum langar að verða lögfræðingur.
Hann fór líka í skólaferðalag í haust til Danmerkur og það sem honum fannst mest gaman var að láta sig falla í frjálsu falli eina 30 m. og lenda í neti. Held ég léti nú frekar skjóta mig en hafa mig út í eitthvað svoleiðis :D

Mummi:

Hann hefur hafið nám við grunndeild bíliðna við Borgarholtsskóla og stefnir á að fara í bílasprautun. Honum þykir rosalega gaman að vera farinn úr foreldrahúsum og nýtur þess í botn að vera fyrir sunnan.
Hann er farinn að vinna hjá Húsasmiðjunni upp í Grafarholti.

Ella:

Hún er aftur farin að vinna í eldhúsi skólans og líkar vel. Hún fór með krökkunum til Danmerkur í haust og þótti ekki síður gaman en þeim :)

Dúddi:

Ég skipti um skóla í haust og fór yfir í Versló. Þó að það hafi allt verið frábært hjá FÁ þá voru námsgreinarnar meira að mínu skapi hjá Versló.
Ég fór semsagt í Þjóðhagfræði 103, sögu 203 og heimspeki 103 og virðist ganga sæmilega miðað við fyrstu einkanir.

Sumarið:

Var bara alveg ágætt. Ég gekk inn að Morsárjökli til að skoða stóra grjótskriðu sem fallið hafði á hann. Nokkrum dögum seinna gekk ég upp á Kristínartinda með Möggu mágkonu minni sem var gríðarlega gaman og sást skriðan á Morsárjökli miklu betur ofan af tindunum.
Seinna fór ég svo í Glerárdalsgönguna eins og ég var búin að blogga um áður og síðasta ganga sumarsins var á Lómagnúp og þá með Finni mági mínum og Möggu mágkonu :)
Svo hafði ég og mest öll fjölskyldan að drattast vestur í Reykhólasveit sem var löngu kominn tími á.
Við kíktum í Mýrartungu og fórum þar í aðalberjamó, fórum þaðan að Efri-Múla til Dísu og Stjána og síðasta heimsóknin var til Lolla frænda í Magnúsarskógum. Takk æðislega öll fyrir móttökurnar, það var rosalega gaman að koma á alla þessa staði :)

Siðferðisspurningarnar:

Ég var um daginn með blogg hérna þar sem átti að raða upp 5 persónum í sögu einni upp eftir því hversu mikið þau hefðu brotið af sér siðferðislega. Nú er komin ný saga með öðrum 5 persónum sem gaman væri að þið vilduð líka raða upp en það eru gamli góði Villi, Bjössi glæpur, nýr Dagur, Dísa skvísa og hin íslenska og frjálslynda Magga. Þið þekkið öll söguna svo ég er ekkert að segja frá henni hér :D

Vona að þið hafið það öll sem best

Dúddi blogglati


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 22:05:48 / Dúddi

Hvað er það rétta?

Margrét þarf nauðsynlega að hitta Pétur kærastann sinn. Vandamálið er að Pétur er staddur hinum megin við stórt fljót sem er fullt af krókódílum. Engin brú er á fljótinu svo eina leiðin til að komast yfir er að fá bátinn hans Villa lánaðan. Þegar Margrét biður um að fá bátinn svarar Villi: ,,Þú skalt fá hann lánaðan með einu skilyrði og það er að ég fái að sofa hjá þér fyrst”. Full örvæntingar leitar Margrét til mömmu sinnar, segir henni frá skilyrði Villa og biður hana um að hjálpa sér. Mamma hennar segir að hún verða að standa á eigin fótum, hún ætli ekki að skipta sér af þessu. Að lokum gefst Margrét upp. Hún gengur að skilmálum Villa, fær bátinn lánaðan og rær yfir til Péturs. Í fyrstu verður Pétur ofsaglaður yfir að sjá hana, en þegar hún segir hvað hún hafi þurft að gera til að komast yfir, verður Pétur reiður og slær til hennar; að kemur Jóhann sem er besti vinur Péturs og gengur á milli þeirra og slær Pétur. Jóhann og Margrét ganga saman burtu.

 -Hvaða siðferðilegu vandamál eru hér á ferðinni.
-Með tilliti til þess áttu að raða persónunum frá 1-5; 1 er sá versti, 5 sá skásti og segja afhverju.


» 14 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 23:21:53 / Dúddi

Lögreður

Ég var að hlusta á útvarpið um daginn og þar var verið að tala við forstöðumann reðursafnsins og var hann að auglýsa eftir reði af manni og sagði að hann gerði kröfu um að það væri lögreður. Hann var þá spurður að því hvað lögreður væri og sagði hann þá sögu af konu sem forðum hefði krafist þess hjá sýslumanni að fá lögskilnað þar sem maður hennar væri bara með þrjár tommur

ein í hár

ein í skinn

og ein inn

og henni fannst hún geta krafist þess að fá karlmann með lögreð. Sýslumaður kannaðist ekki við þau lög sem segðu til um löglega stærð karlkynskynfæris og spurði því konuna hvað það væri og sagði hún að það væri

ein í hár

ein í skinn

og þriðja, fjórða og fimmta inn

Það er greinilega margt sem hægt er að læra af því að hlusta á útvarpið :D

Í kjölfarið á þessu var náttúrulega öll málbönd, tommustokkar og reglustikur faldar á heimilinu svo minni hætta verði á skilnaði.

Dúddi "litli"


» 14 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 22:45:04 / Dúddi

MMC L200

Ef eitthvað er að marka gestateljara þessarar síðu, þá eru ótrúlega margir að kíkja hér við á hverjum degi svo ég má bara til að segja frá því að vinur minn er að selja bíl :D

MMC L200
árg. 1993
Túrbó dísel
32" dekk
Skoðaður 08
verð 100 þús
ekinn 220 þús
Upplýsingar í síma 892 2886

Hvað segið þið, vantar ykkur ekki svona bíl????

Dúddi sölumaður


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 22:50:39 / Dúddi

Kuldaþol íslendinga

+15°C
Fólkið á Spáni notar kuldaúlpur og þykka vettlinga.

Íslendingar liggja í sólbaði.

+10°C
Frakkar reyna af vanmætti að fá kyndinguna í gang.

Íslendingar planta blómum í garðana sína.

+5°C
Bílar á Ítalíu neita að fara í gang.

Íslendingar fara að gamni sínu í bíltúr á Saab druslunni.

0°C
Eimað vatn frýs.

Vatnið í Hvítá verður aðeins þykkra.

-5°C
Fólkið í Californíu frýs næstum til dauða.

Íslendingarnir grilla í síðasta sinn áður en veturinn skellur á.

-10°C
Bretar byrja að kynda húsin sín.

Íslendingar byrja að nota langerma boli.


-20°C
Götusalar byrja að flýja frá Mallorca .

Íslendingar enda miðsumarshátíðina. Haustið er gengið í garð!


-30°C
Grikkir deyja úr kulda og hverfa af yfirborði jarðar.

Íslendingar hætta að þurrka þvott úti.


-40°C
París byrjar að gefa eftir kuldanum.

Íslendingar standa í biðröð við pylsuvagnana.


-50°C
Ísbirnirnir byrja að flykkjast burt frá Norðurpólnum.

Íslenska landhelgisgæslan frestar björgunaræfingum, í von eftir alvöru
vetrarveðri.


-60°C
Mývatn frýs.

Íslendingar leigja sér spólu og halda sig inni við.


-70°C
Jólasveinninn heldur í suðurátt.

Íslendingarnir verða pirraðir því þeir geta ekki geymt brennivínið sitt úti.
Íslenska landhelgisgæslan setur í gang björgunaræfingar.


-183°C
Örverur í mat lifa ekki af.

Íslenskar kýr kvarta yfir handköldum bændum.


-273°C
Öll atóm staðnæmast vegna kulda!

Íslendingar byrja að tala um að það sé kalt úti.


-300°C
Helvíti frýs!

Ísland vinnur Eurovision!

Dúddi kaldi


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 22:17:12 / Dúddi

Slys

Fyrrverandi vinnufélagi minn var að deyja í mótorhjólaslysi í kvöld.

Ég samhryggist fjölskyldu hans innilega.

Hann átti konu og tvö pínulítil börn.


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 00:40:25 / Dúddi

Hef verið þar!

Verð að segja ykkur frá skrýtinni lífsreynslu sem ég varð fyrir í göngunni fyrir norðan um daginn.

Þegar ég var að ganga á tvo síðustu tindana, sem kallast Súlur, var ég sannfærður um að ég hefði verið þar áður. Ég þekkti allt útsýnið, gönguleiðina og allt saman og fannst að ég hefði verið á þessum stað fyrir nokkrum árum.

Ég var lengi að spá og spöglera en gat ekki komið fyrir mig hvenær ég hefði verið að ganga þarna áður og sannfærði loks sjálfan mig að ég hafi aldrei áður gengið í nágrenni Akureyrar og þegar ég fór að hugsa á þeim nótum rifjaðist allt í einu upp fyrir mér að ég hafði einu sinni verið að gera grín að því við Ellu að mig hefði dreymt að ég væri að ganga á fjöllum í nágrenni Akureyrar af öllum stöðum, eins og ég ætti það einhvern tíma eftir.

Ég man ekki drauminn fyllilega lengur en það sem ég man er að mér fannst ég vera að ganga á fjöllum nærri Akureyri með allavega hluta af fjölskyldu minni, man allavega eftir Katrínu og Braga í draumnum og man að við vorum eitthvað fleiri en man ekki lengur hverjir það voru en svo virðist sem mig hafi dreymt leiðina og útsýnið það vel að ég þekkti staðinn er ég kom þangað í vöku. T.d. er á holti fyrir neðan aðra Súluna steinn sem í fjarlægð lítur alveg eins út og húsgul kind með skitu. Skrýtin björg eru upp á brún fjallana og fleira í þessum dúr sem ég þekkti í hvelli og er ég sá þau.

Verð að segja að mér finnst voða skrýtin tilfinning að hafa orðið fyrir þessu. Einu sinni hefur reyndar komið fyrir mig að ég þekkti mann í vöku sem mig hafði dreymt nóttina áður en það gerðist fyrir mörgum árum.

Dúddi sem verður sífellt ruglaðari :S


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 23:35:24 / Dúddi

24x24

Þá er maður kominn heim úr sumarfríinu.

Fór norður á Akureyri og tók þar þátt í göngu sem kallast 24x24 og fær hún nafnið af því að reynt er að komast á 24 fallstinda á 24 tímum. Ekki hafði ég þá á 24 tímum heldur var 27,5 tíma að ganga hringinn í kringum dalinn, reyndar telst mér til að tindarnir séu kannski líka fleiri en 24. Lagt var af stað klukkan hálf níu á laugardagsmorgun og ég var kominn til byggða rétt fyrir hádegi daginn eftir.

11 þessara tinda eru yfir 1400 metrar yfir sjávarmáli og sá hæsti, Kerling, er yfir 1500 metrar.

Þetta er svona með því erfiðasta sem maður hefur lent í á ævinni, sérstaklega fyrir það að ég átti erfitt með að borða alla leiðina (og hafði reyndar litla lyst daginn áður líka) og þegar fór að líða á nóttina fór ég að eiga erfitt með að drekka líka þar sem ég varð bara veikur ef ég lét eitthvað í magann á mér. Spurði ég gönguspésalistana hver ástæðan væri þegar ég kom til byggða og þeir sögðu að það væri ofþreyta. Var nú ekki alveg sáttur við sjálfan mig að verða svona ofsalega þreyttur snemma í göngunni að ég gæti ekki borðað en svo á mánudeginum varð elsta dóttir mín veik í maganum og svo konan mín daginn eftir svo nú hallast ég að því að ég hafi verið með einhverja pest.

Að labba þetta lengi og þetta langt (tæpa 50 km.) án þess að borða dugði til að missa fjögur kíló svo eitthvað gott hafðist út úr því , en ef ég þekki sjálfan mig rétt þá verð ég nú snöggur að endurheimta þau .

Það tók mig, óvanan manninn, tvo daga að jafna mig í fótleggjunum eftir þessa göngu svo nú skora ég bara á ykkur öll sem hafið gaman af gönguferðum að stefna að því að vera með á næsta ári. Það er svo sannarlega þess virði. Sérstaklega ef það verður eins gott veður eins og það var nú, þetta var bara æðislegt

Dúddi í alvörunni gönguSLAPPUR


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 23:16:55 / Dúddi

Heyskapur og sumarfrí

Fyrirgefið hvað ég hef verið latur að blogg upp á síðkastið.

Hefði átt að blogga síðasta sunnudag og segja ykkur frá því að ég væri byrjaður að heyja þar sem að það fyrsta var slegið þá eftir hádegið. Það síðasta af fyrri slætti var komið í plast á fimmtudagskvöldi og allt komið heim fyrir hádegi í dag. Semsagt heyskapnum lokið á viku, um 340 rúllur.

En svona til að forða ykkur frá því að vera alltaf að kíkja hér við til einskis þá ætla ég að taka mér sumarfrí frá bloggi allavega í þrjár vikur. Er að fara í göngutúr á morgun. Ætla að ganga inn að Morsárjökli að skoða skriðuna stóru sem féll þar í vor eða vetur. Ætla síðan að klára þau verk, bæði í vinnu og skóla, áður en ég fer norður í gönguna þar 7. júlí svo það verður lítið um tíma til að blogga fyrr en ég kem heim aftur.

Megi þetta vera besta sumar sem þið hafið lifað hingað til

Dúddi gönguslappur


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 10:37:24 / Dúddi

Árlegt mont

Skólaslit Kirkjubæjarskóla á Síðu voru í gær.

Þó skömm sé frá að segja, eftir að hafa átt börn í skólanum í 10 ár og verið í fræðslunefnd í 5 ár, þá voru þetta fyrstu skólaslitin sem ég mætti á. Varð nú að mæta núna þar sem að Mummi var að útskrifast og verð líka að mæta næstu tvö ár þar sem að Bragi útskrifast á næsta ári og Katrín árið þar á eftir.

Bragi var með 6,3 í einkun og er það mjög svipað og hann hefur yfirleitt verið með. Hann þarf að passa sig svolítið og vera mjög duglegur næsta ár ef hann ætlar að ná öllum samræmdu prófunum á næsta ári. Hann fékk eina einkun fyrir neðan 5 en hún var 4,5 svo hann verður bara að passa sig að gera ekki verr en núna :)

Katrín var með 7 í meðaleinkun og er það örugglega það slappasta sem hún hefur verið með. Ekki er þó hægt að kvarta yfir slíkri meðaleinkun :)

Mummi var með 6,8 í meðaleinkun úr samræmdu prófunum og stóðst þau öll en hann tók öll sex prófin. Þrjú tók hann meira að segja kvalinn af tannrótarbólgu, upp dópaður og ósofinn, en náði samt.
Hann fékk 7,6 í meðaleinkun úr skólaprófunum og er það með því betra sem hann hefur náð undan farin ár :)
Hann fékk verðlaun fyrir góðan árangur í samfélagsfræði og svo var hann sérstaklega verðlaunaður fyrir hvað hann hefur verið prúður, kurteis, duglegur og jákvæður þessi 10 ár sem hann hefur verið í skólanum. Oft hef ég verið montinn af börnunum mínum en aldrei eins held ég og þegar Mummi tók við síðar nefndu verðlaununum. Ekki skemmdi heldur að hann skuli hafa fengið þessi verðlaun á þeim degi sem afi hans og nafni hefði orðið áttræður hefði hann lifað.

Guðdís fékk 8,1 í meðaleinkun og virðist hún ætla að byrja skólagönguna vel. Hún var að klára 2. bekk. Gott að hún skuli vera kominn með góðan grunn fyrir framhaldið, þá ætti það að vera léttara.

Begga var að klára 4. bekk og fékk 9,5 í meðaleinkun. Hún tók sex próf og fékk þrjár 9ur og þrjár 10ur. Hún var samt nærri eins ósátt og Katrín þar sem að hún fékk 9 í stærðfræði og svo lágt hefur hún aldrei fengið í því fagi og fannst henni það nú bara vera falleinkun :S.

Þó að börnin mín séu misánægð með niðurstöðurnar þá er hann faðir þeirra alveg í skýjunum yfir þeim og finnst þau öll hafa staðið sig með stakri prýði :)

Dúddi í árlegri sælu vímu (vonandi verður það áfram næstu ár :D )


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 19:44:51 / Dúddi

Sumarfrí

Ekki fara fram úr þér við að skipuleggja sumarfríið þótt þú hlakkir voða mikið til. Þessi æsingur gæti pirrað aðra svo mikið að þeir hætta við að fara með þér.

Svona hljómar stjörnuspá mín fyrir daginn í dag á mbl.is

Kom á skemmtilegum tíma. Er einmitt að undirbúa sumarfríið og hlakka rosalega til ef allt gengur eftir :lol:. Svo nú verður maður sennilega að róa sig niður ef maður tekur mark á spánni ;)

Dúdd'í frí


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 23:45:16 / Dúddi

Loksins, loksins, loksins!!!

Er loksins búinn að setja inn myndir frá fermingunni hennar Katrínar. Er hér undir myndir, fermingin hennar Katrínar.

Má geta þess svona með að ég stóðst stærðfræðiprófið.

Dúddi heppni


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 00:00:26 / Dúddi

Nóg að gera

Ég var vakinn klukkan sex í morgun til að hjálpa kind sem átti í burðarerfiðleikum. Ekki var ég hissa á þeim erfiðleikum þegar ég fór að skoða kindina. Það fyrsta sem ég fann var dindill en engar voru lappirnar. Eftir ýtarlega leit þá fann ég helminginn af þeim inn í kviðarholi lambsins, þ.e.a.s. að það var ekkert fyrir neðan hækil á afturlöppunum og þær höfðu ekki vaxið út úr lambinu heldur voru bara saman lagðar inn í kviðarholinu. Þegar ég náði svo lambinu þá sá ég að það vantaði báðar klaufir á framlappirnar líka. Sem betur fer var það ekki lifandi en móðurinni og bróður heilsast vel.

Fór í fyrsta prófið í dag. Vænti þess að þetta hafi verið í fyrsta skiptið sem ég hef fallið á prófi. Svolítið fáránlegt að það skuli vera í stærðfræði, þar sem það hefur verið mín grein hingað til, fékk t.d. 10 í henni fyrir áramót. En svona getur þetta farið þegar maður hefur ekki tíma til að stunda námið eins og maður ætti að gera. Vona þó að ég hafi náð að skríða yfir 5 en nú er bara að bíða og sjá. Fer svo í tvö próf á morgun, í ensku og bókfærslu. Vona að þau eigi eftir að ganga betur.

Já, svona leið nú dagurinn hjá bóndanum og saklausa skóladrengnum fyrir utan fundi, skítkeyrslu, mjaltir, nám og sitt hvað fleira :)

Ég á eftir að setja inn fermingarmyndirnar hennar Katrínar hér á síðuna. Vona að ég megi vera að því fljótlega en það verður þó líklega ekki um helgina.

Dúddi upptekni


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 11:56:49 / Dúddi

Gleðilegt sumar

Gleðilegt sumar öll sömul og takk æðislega fyrir veturinn :)

Margt hefur verið í gangi hjá mér síðustu daga vetrar. Það helsta náttúrulega er að hún Katrín mín lét ferma sig 5. apríl og hélt svo veislu fyrir alla gestina á Hótel Laka. Dagurinn sá tókst í alla staði alveg frábærlega. Vel mætt af skemmtilegu fólki, falleg athöfn, frábærar veitingar og rosalegar gjafir :).

Ég er fyrsti bóndinn í Eystra-Hrauni í nærri þrjá áratugi sem fermi þriðja barnið sitt. Vonandi les Magga mágkona þetta þar sem að hún var fermingarbarnið síðast þegar bóndi í Hrauni fermdi þriðja barnið ;)

En fyrst ég nefni met, þá hafa kýrnar verið að bera alveg á fullu hjá mér og eru nú 40 mjólkandi og hafa aldrei verið fleiri. Burðirnir hafa ekki gengið alveg nógu vel þó en stór hluti af þeim sem hafa verið að bera eru fyrstakálfs kvígur og hafa þær flestar átt dauð naut en fullorðnu kýrnar hafa flestar átt lifandi kvígu svo það er huggun :)

Frá 1. apríl 2006 til 31. mars 2007 mjólkuðu kýrnar mínar meira en þær hafa nokkru sinni gert áður á 12 mánuðum. Munaði ekki nema 60 lítrum að þær næðu að mjólka 6000 lítra að meðaltali.

Lítið hefur mér gengið í skólanum og er ég nú í kappi við að vinna það upp fyrir prófin sem byrja í byrjun maí. Hef ég tekið nokkur skyndipróf í stærðfræði og fengið frá 4 og upp í 9. Ekki gott mál að lenda svona á eftir. Tek pottþétt færri greinar í haust.

Látum þetta vera gott í bili. Vona að sumarið verði ykkur gleðilegt og gæfuríkt.

Dúddi sumardrengur

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 33
Dagatal
Leitarbox